Jæja, þá er komið að því að taka sig á. Enn eina ferðina.
Ég gafst upp á danska fyrir all nokkru síðan, faldi mig bak við þá afsökun að það væri svo mikil fyrirhöfn að elda þetta allt saman og ég ætti auðveldara með að eyða tíma í að hreyfa mig bara. Auðvitað fór ég svo aldrei af stað í ræktina. Þá hafði ég misst 18 kg með hjálp DDV. Ég hef ekki farið á vigtina til að athuga hve mörg eru komin aftur á þessum 18 mánuðum.
Ég get nú samt með sanni sagt að ég notaði þessa 18 mánuði til að taka kollinn á mér í gegn og þrátt fyrir að ég hef þyngst þá hefur sjálfstraustið aukist til muna.
Þegar ég gafst upp þá var ég með mjög óreglulegan vinnudag. Í skóla. Nú er ég með mikla reglu á vinnudeginum, ræð mér að mörgu leyti sjálf og hef því enga afsökun. Ætla ekki að leyfa mér neinar afsakanir í þetta sinn.
Ég þekki sjálfa mig nógu vel til að vita að ég þarf að hafa allt 100%. Ef ég fer niður í 99% þá fer ég bara neðar og neðar þar til ég dett út. Þessvegna tók ég þá ákvörðun að byrja ekki á danska fyrr en 1. janúar 2008. Ég hef hinsvegar sett mér það markmið að þyngjast ekki frá því núna og þar til þá.
Tímann ætla ég að nota til að skipuleggja mig, fara í gegnum hugann á mér og taka til þar svo ég verði vel undir það búin þegar ég tekst á við nýtt verkefni eftir áramótin 
Bið að heilsa ykkur
Kv. EllyMae